Málþing um samstarf sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu
Þann 1.júní kl. 9-12 verður haldið málþing á Teams um samstarf sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu. Áhersla verður lögð á verkefnin, stöðuna og lagaumhverfið.
Á málþinginu verður kynnt fyrsta samstarfsverkefni sveitarfélaga inn á Ísland.is og vegvísi fyrir næstu umsóknarferla. Einnig verður farið yfir greiningu skrifstofuhugbúnaðar hjá sveitarfélögum, stöðu hennar og framtíðarsýn. Einfaldari skjalamál og rafræn skil verða kynnt ásamt lagaumhverfi í stafrænni umbreytingu. Og að lokum verður farið yfir hvernig vefsíðan stafraen.sveitarfelog.is getur nýst sveitarfélögum.