Betri borg fyrir börn á Hönnunarmars

Sýningin er upplifunarsýning þar sem gestir fá að skyggnast á bakvið tjöldin hjá Reykjavíkurborg í ferli þjónustuumbreytingar. Komdu að sjá hvernig áskoranir eru ávarpaðar, hvernig við vinnum með þær og setjum fram stafræna lausn sem bætir þjónustu borgarinnar við íbúa í verkefninu Betri borg fyrir börn.

Á málstofu verður rætt um þjónustuhönnun og hönnunarhugsun. Við heyrum sjö erindi frá starfsfólki Reykjavíkurborgar sem gefa góða og skemmtilega innsýn inn í hvernig unnið er að þjónustuhönnun hins opinbera. Í lokin verður pallborð þar sem Dagur B. Eggertsson, Paul Bennett og Ragnheiður H. Magnúsdóttir ræða opinbera þjónustuhönnun ásamt Fjólu Maríu Ágústsdóttur.

Samfelld og notendavæn þjónustuupplifun er krafa íbúa í dag, ekki bara til fyrirtækja heldur einnig þegar kemur að þjónustu sem veitt er á vettvangi hins opinbera.

Upplifunarrými: Sýningin mun leyfa gestum að skoða, snerta á og hreyfa við ferlum Reykjavíkurborgar. Hér er verið að umbreyta ferlinu þegar grunur vaknar um að barn þurfi frekari aðstoð eða greiningu á vanda. Eins og margir vita er þetta ferli flókið og þungt í vöfum og að mestu leyti unnið á pappír en nú stendur yfir umbreyting á þessu ferli. Sýningin varpar ljósi á alla þá vinnu sem liggur að baki og þá hönnunarhugsun sem Reykjavíkurborg beitir við þjónustuumbreytingu.

Verkefnið verður í miðju hönnunarferli þegar sýningin verður opnuð og því er gestum boðið upp að leggja sitt á vogarskálarnar og deila sinni reynslu.

Málstofa: fimmtudaginn 5. maí kl 14:00 – 17:00 verður boðið upp á málstofu þar sem þjónustuhönnun (e. civic design) í starfsemi Reykjavíkurborgar verður til umfjöllunar sem og hönnunarhugsun, sem er sú aðferðafræði sem Reykjavíkurborg beitir nú markvisst við þjónustuumbreytingu. Við heyrum sjö erindi frá hönnuðum úr hópi starfsfólks Reykjavíkurborgar sem gefa góða og skemmtilega innsýn inn í hvernig unnið er að þjónustuhönnun hins opinbera. Í lokin verður pallborð þar sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Paul Bennett, Ragnheiður H. Magnúsdóttir ræða opinbera þjónustuhönnun, en umræðurnar leiðir Fjóla María Ágústsdóttir.

Dagskrá

  • kl 14:00 Fjóla María Ágústsdóttir opnar viðburðinn 
  • kl 14:10 Að spyrja og prófa  - Árni Jónsson, forstöðumaður Laugardalslaugar og Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri miðlunar og nýsköpunar á Borgarbókasafninu segja örsögu um hvernig er hægt að bregðast við örum samfélagsbreytingum í opinberri þjónstu og umhverfi hennar.    
  • kl 14:20 „Mér finnst svo gott þegar þú spyrð mig hvernig mér líður í vinnunni“  - Halla María Ólafsdóttir, verkefnastjóri, og Eva Jakobsdóttir, þjónustuhönnuður, unnu saman í teymi að umbreytingu á þjónustu Skóla- og frístundasviðs. Traustið og skilningurinn í samstarfinu varð til þess að brjóta niður veggi milli sviða og stuðla að nýrri sýn á þjónustu og vinnulag. Halla og Eva ræða um starfræna umbreytingu á þjónustu, hið svokallaða kúltúrhakk.  
  • kl 14:30 Spjallað í pottinum - Búi Bjartmar Aðalsteinsson, þjónustuhönnuður, skautar yfir aðferðir í viðtölum og greiningarvinnu tengda Ylströndinni ásamt því að taka snúning á nokkrum af afurðum vinnunnar. Auk þess verður spáð og spekúlerað í mikilvægi samtals við notendur og þjónustuþega. 
  • kl 14:40 „Næsasta bókasafn í lífinu!“  - Þegar Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal opnaði núna í desember þá á ungur bóksafnsgestur að hafa sagt þessi fleygu orð við félagana. En hvernig verður bókasafn næs? Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal, segir frá vinnunni sem býr að baki og hvernig starfsfólk Borgarbókasafnsins nýtti sér meðal annars aðferðir þjónustuhönnunar í ferlinu. 
  • kl 14:50 „Hönnuð hönnun" (og Hanna nú!)  - Hvort er hönnunarkerfi meira stjórnarskrá, samskiptastaðall eða tvíhliða varnarsamningur milli forritunar- og hönnunarteyma? Már Örlygsson viðmótssérfræðingur ræðir hvernig kerfisbundin hönnun flýtir framkvæmd, lækkar kostnað og eykur gæði og aðgengileika rafrænnar þjónustu hjá Reykjavíkurborg. 
  • kl 15:00 Ráðgjafinn - Ráðgjafinn er ný lausn fyrir íbúa og starfsfólk í velferðarþjónustu borgarinnar. Styrmir Erlingsson, framkvæmdastjóri rafrænnar þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar, fjallar um þróun lausnarinnar, tækifærin sem felast í henni og hvaða hlutverki lausnin gegnir í stafrænni vegferð velferðarsviðs. 
  • kl 15:10 Ný sýn á hverfi Reykjavíkur - Ævar Harðarson frá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar beina kastljósinu að Hverfasjánni: stafrænni upplýsingagátt þar sem nálgast má skilmála í hverfum sem hafa fengið hverfisskipulag.  Tilgangurinn með hverfasjá er að bæta aðgengi að upplýsingum og stytta málsmeðferð skipulagsmála í Reykjavík.    
  • kl 15:20 Ferðalag Ísaks frá málþroskavanda til úrlausnar - Hvernig getur listrænn leikjahönnuður og doktor í félagssálfræði hjálpað Ísaki að fá þjónustu við hæfi? Embla Vigfúsdóttir og Gró Einarsdóttir ræða um hvernig er hægt að beita leikjavæðingu og valhönnun í stafrænni umbreytingu á skólaþjónustu fyrir börn sem þurfa á stuðningi að halda til að bæta líðan sína og finna farveg fyrir styrkleika sína. 
  • kl 15:30 Panell (Dagur B. Eggertsson, Paul Bennett, Ragnheiður M. Magnúsdóttir & Fjóla María Ágústsdóttir)
  • kl 16:00 Opnun sýningar og léttar veitingar 

Nánari upplýsingar um viðburinn

Viðburðurinn á Facebook