Umsókn um fjárhagsaðstoð

Umsóknarkerfið

Leiðbeiningar

Sveitarfélög sem hafa sett upp kerfi

  • Hafnarfjörður
  • Reykjanesbær
  • Akranes
  • Árborg
  • Mosfellsbær
  • Hvalfjarðarsveit
  • Langanesbyggð
  • Skagafjörður
  • Suðurnesjabær
  • Tjörneshreppur
  • Norðurþing 
  • Þingeyjarsveit

Fyrsta samstarfsverkefni sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu var umsókn um fjárhagsaðstoð.

Þróun við verkefnið hófst í apríl 2021 og innleiðing hófst í janúar 2022.

Fjárhagsaðstoð til fólks sem ekki getur séð sér og sínum farborða án aðstoðar er mikilvægt málefni sem sveitarfélögin tóku ákvörðun um að vinna að sameiginlega við þróun stafrænnar lausnar inn á miðlægan þjónustuvef Ísland.is.

Reykjavíkurborg hafði áður hannað ferlið og innleitt nýja lausn og nýttist sú hugmyndafræði við hönnun lausnarinnar sem nú verður aðgengileg öðrum sveitarfélögum landsins. 

Um verkefnið

Lausnin er hýst og viðhaldið á miðlægum stað um leið og tæknilegir innviðir Ísland.is eru nýttir.

Í fyrstu lotu verkefnsins var lausnin þróuð fyrir eitt tilraunasveitarfélag sem var Hafnarfjörður. Þar var lausnin gangsett í janúar 2022. Í seinni lotu verkefnisins er sjálfvirk gagnaöflun og gangsetning lausnar hjá öðrum sveitarfélögum.

Verkefnið er fyrsta skrefið í sameiginlegri vegferð sveitarfélaga í samvinnu við Stafrænt Ísland og nýtingu tæknilegra innviða sem byggðir hafa verið upp hjá ríkinu og innlegg í þá framtíðarsýn að vinna fleiri umsóknarferla sameiginlega á miðlægan stað.

Markmið

  • Einfalda og bæta þjónustu við notendur hvar á landinu sem þeir búa
  • Fækka skrefum og minnka pappírsumstang
  • Tryggja öryggi við umslýslu umsókna

Áskorun

Helsta áskorunin er mismunandi verklag sveitarfélaga við veitingu fjárhagsaðstoðar og verður því lagt kapp á að aðstoða þau við innleiðingu og endurhönnun á verklagi út frá nýrri tækni.

Ávinningur

Ávinningur sveitarfélaga með nýrri tækni er einföld og notendavæn umsókn sem leiðir notandann í gegnum ferlið með sjálfvirkri gagnaöflun og nýtingu innviða ríkisins eins og innskráningarkefis, ferlakerfis, Straumsins og stafræns pósthólfs. Ein lausn er hönnuð, þróuð og viðhaldið fyrir sveitarfélögin. Tækifæri verða til að þróa á sama grunni fleiri velferðarþjónustur og bæta við tengingum við gagnaskrár ríkisins þegar fram líða stundir.

Minni tími fer í útskýringar og upplýsingamiðlun um stöðu umsóknar til umsækjenda. Ávinningur umsækjanda er gott aðgengi, notendavæn umsókn, minni tími í söfnun fylgiskjala og betri yfirsýni yfir umsóknina og stöðu hennar.

Samstarfsaðilar

Verkefnið er liður í aðgerðaráætlun þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga og hlaut fjárstuðning að upphæð 100 m.kr. á fjárauka árið 2020 sem liður í Covid aðgerðum. Verkefnið hófst í apríl 2021 og er leitt af stafrænu umbreytingarteymi sambandsins í samstarfi við sveitarfélög, Stafrænt Ísland, innanráðaráðuneyti, Kolibri og Andes.

Hér er hægt að fræðast nánar um verkefnið frá starfsfólki Sambands íslenskra sveitarfélaga, Hafnarfjarðarbæjar og Kolibri. Viðtölin voru tekin í lok september 2021.