Nýsköpunardagur hins opinbera 2023 (NHO23) fer fram í Veröld – húsi Vigdísar þann 23. maí kl 9:00- 14:00
Markmið Nýsköpunardagsins er að stuðla að auknum opinberum innkaupum á nýsköpun með sérstakri áherslu á lausnir sem skapa sparnað í opinberum rekstri.
Sprota- og nýskapandi fyrirtæki verða í aðalhlutverki með kynningum á nýjum og spennandi sparnaðarlausnum ásamt mikilvægum fróðleik um opinber innkaup á nýsköpun.
Í kjölfar kynninga gefst færi á tengslamyndun milli fyrirtækja og opinberra aðila til að ræða leiðir að bættri þjónustu og aukinni skilvirkni í opinberum rekstri.
Dagskrá
Opnunarávarp | Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir | háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra |
Sparnaðarlausnir | 20 sprota- og nýsköpunarfyrirtæki | 5 mínútna kynningar |
Tengslamyndun og veitingar |
Léttar veitingar og kaffi fyrir þá sem mæta snemma og kaffihlé kl 10:15
Nánar á opinbernyskopun.is