Stafræn tækifæri í skóla- og frístund

Könnun CoreMotif sem gerð var um stöðu sveitarfélagana velti upp tækifærum sem væri hægt að nýtast við í skóla- og frístundarmálum sveitarfélaga og hvernig sveitarfélög í samstarfi við önnur sveitarfélög gætu bætt þjónustu við íbúa.

• Með sameiginlegu ytra mati
• Auka þjónustu með notkun á íbúagátt
• Gott væri ef sveitarfélög gætu haft lokaðan aðgang að kerfi sem sýnir hvar barn er skráð í leik eða grunnskóla og að sú skráning væri tengd þjóðskrá og í því kerfi væri hægt að sjá þá ef barn er hvergi skráð td til eftirfylgni á skólaskyldu.
• Að hægt verði að sækja rafrænt um í grunnskóla og frístund í hverjum skóla (t.d. í gegnum Mentor) líkt og gert er í Karellen í leikskólunum.
• Að sveitafélög séu samstiga um reglur er varðar leik-og grunnskóla.
• Efla rafrænt umsóknarferli og þjónustu og að foreldrar geti séð stöðu umsókna sinna í þjónustugátt - hvar í röðinni þær eru
• Sameining skóla
• Betri rafrænar lausnir í upplýsingamiðlun
• Tækifæri til að bæta upplýsingamiðlun þegar fólk flytur á milli sveitarfélaga.
• Meðal annars með sameiginlegri skólaþjónustu fyrir sveitarfélögin á Suðurnesjum.
• Mjög mikilvægt er að bæta samgöngur á milli sveitarfélaga á svæðinu. Bæði auknar strætóferðir og að gera hjóla/göngustíg á milli þeirra. Meiri samvinnu varðandi skipulag á framboði á íþrótta og tómstundastarfi og uppbyggingu
íþróttamannvirkja. Aukið samstarf til að mynda með frístundabíl sem kemurbörnunum á æfingar. Samvinna og framtíðarstefna í uppbyggingu á íþróttasvæðum og hver staður væri með sérhæfingu en ekki öll sveitarfélögin að
byggja upp samskonar aðstöðu. Eiga samstarf um uppbyggingu á sameiginlegum útivistarsvæðum.
• Með íbúagátt þar sem fram gætu farið hvers kyns rafræn samskipti
• Aukið samstarf milli skólanna, bæði rafrænt og á staðnum. Aukið samstarf og samráð skólastjóra á svæðinu.
• Auka samstarf milli íþróttafélaga.
• Samræming á fleiri þjónustuþáttum
• Alla þjónustu við íbúa hér í hreppnum má bæta verulega, hér vantar sárlega rafræna íbúagátt til að vera í samskiptum við fólkið á hreppsskrifstofunni.
• Sameiginlega ráðningu sérfræðinga s.s. sálfræðing, náms- og starfsráðgjafa