Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the check-email domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Please see Debugging in WordPress for more information. (This message was added in version 6.7.0.) in /nas/content/live/stafraensveita/wp-includes/functions.php on line 6121

Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the uncanny-automator domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Please see Debugging in WordPress for more information. (This message was added in version 6.7.0.) in /nas/content/live/stafraensveita/wp-includes/functions.php on line 6121
Stafræn umbreyting í Hafnarfirði – 1160 dagar - Stafræn sveitarfélög

Stafræn umbreyting í Hafnarfirði – 1160 dagar

Hafnarfjarðarbær efnir til ráðstefnu 10. nóvember 2022 um stafræna umbreytingu í sveitarfélaginu frá 2019 til dagsins í dag. Þrjú ár er ekki langur tími í svo stóru verkefni en eitt og annað hefur gerst á þeim tíma. Á þessari ráðstefnu mun starfsfólk gefa innsýn í vegferðina og það sem framundan er. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri, mun opna ráðstefnuna.

Birt á vef Hafnarfjarðar:

Ráðstefna fyrir allt áhugafólk um stafræna þjónustu

Sveitarfélögin vinna náið saman í stafrænum verkefnum og gott samstarf er einnig við Stafrænt Ísland. Á ráðstefnunni mun Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, og Fjóla María Ágústsdóttir, breytingastjóri stafrænnar þjónustu hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, halda erindi. Auk þess mun Þröstur Sigurðsson, skrifstofustjóri stafrænnar Reykjavíkurborgar, stýra fundinum. Í lok ráðstefnunnar verður nýr vefur og nýjar mínar síður kynntar.

Áhugafólk um stafræna þjónustu sveitarfélaga er hvatt til að skrá sig á ráðstefnuna sem verður haldin í Bæjarbíói en einnig verður hægt að fylgjast með ráðstefnuninni í streymi.

Skráning á staðfund og í beint streymi 

Dagskrá ráðstefnunnar 

Fundarstjóri: Þröstur Sigurðsson hjá Reykjavíkurborg

  • 12.30   Húsið opnar
  • 13.00   Ávarp. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri
  • 13.10 1160 dagar í stafrænni umbreytingu. Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóri
  • 13.30   Félagsþjónusta með nokkrum smellum. Soffía Ólafsdóttir, deildarstjóri
  • 13.40   Bylting í mannauðsmálum. Kristín Sigrún Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri
  • 13:50   Uppbygging stafrænna innviða. Eymundur Björnsson, deildarstjóri
  • 14.00   Kortavefur og ábendingagátt, breytt verklag og samskipti við íbúa. Helga 
                    Stefánsdóttir, forstöðumaður
  • 14.10   Kaffi
  • 14.40   Innritunarferli í skólum. Valdimar Víðisson, skólastjóri og formaður bæjarráðs
  • 14.50   Þjónustuver leysir málin í fyrstu snertingu. Anna Bára Gunnarsdóttir, deildarstjóri
  • 15.00   Ávextir samstarfs sveitarfélaga. Fjóla María Ágústsdóttir, Samband íslenskra
                    sveitarfélaga
  • 15.20   Ísland.is, líka fyrir sveitarfélögin. Andri Heiðar Kristinsson, Stafrænt Ísland
  • 15.40   Nýr vefur Hafnarfjarðarbæjar og Mínar síður. Garðar Rafn Eyjólfsson, vefstjóri
  • 16.00   Samantekt. Þröstur Sigurðsson, skrifstofustjóri Reykjavíkurborg
  • 16.10   Léttar veitingar