Þann 31. ágúst 2023 mun Félag um skjalastjórn halda stóra haustráðstefnu undir nafninu Þetta þarftu að vita! Verðmætin liggja í upplýsingum!
Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er stjórnkerfi upplýsinga (e. Information Governance), hvar við stöndum, hvert við getum stefnt og hvaða skref þarf að taka. Sjá nánar á radstefna.irma.is og Tix.is.
Stjórnkerfi upplýsinga (Information Governance eða IG) felur í sér stjórnkerfi fyrir upplýsingar innan skipulagsheildar og getur náð utan um gagnastýringu, persónuvernd, upplýsingaöryggi, skjalastjórnun, áhættumat og hlýtingu laga til að tryggja virði upplýsinga. Málaflokkurinn kemur því víða við í starfsemi fyrirtækja og er að verða æ mikilvægari þegar kemur að umfangi og magni gagna sem þarf að stýra og hagnýta í þágu notenda og þjónustuþegaog ekki síður til að uppfylla þær lagalegu kröfur sem stofnunum og fyrirtækjum ber að hlíta m.t.t. persónuverndar og upplýsingalaga svo eitthvað sé nefnt.
Lykilfyrirlesarar búa yfir viðamikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði og nálgast efnið á ólíkan hátt.
- Lewis Eisen, alþjóðlegur metsöluhöfundur og fyrirlesari: Making an Information Policy strategic and successful
- Anthea Seles, sérfræðingur í stafrænni skjalastjórn og varðveislu, Use of Artificial Intelligence in the dissemination of information
- Manfred Traeger, framkvæmdastjóri og sérfræðingur í stjórnun upplýsinga, A practical guidance for Information Governance – Lessons learned
Aðrir fyrirlesarar eru innlendir sérfræðingar sem veita okkur frekari innsýn í sína þekkingu, reynslu og umhverfi. Ráðstefnan er ætluð öllum sem hafa áhuga á, vilja fylgjast með og fræðast um stjórnkerfi upplýsinga. Hún er einnig sérlega gagnleg fyrir alla sem koma að stefnumótun og stjórnun í sínu starfi sem og þeir sem vinna að upplýsingastjórnun hvort sem það varðar gagnastýringu, skjalastjórnun, persónuvernd, upplýsingaöryggi eða stjórnsýslu.
Nánari upplýsingar um efni fyrirlestra má finna á ráðstefnuvefnum:
Ráðstefnuvefur: radstefna.irma.is