Á vefsíðu Garðabæjar geta íbúar leigt sér matjurtagarð eða gróðurkassa. Kerfið var sett upp á vefsíðuna í apríl síðastliðnum.
Nýtt kerfi þar sem íbúar Garðabæjar geta valið sér og leigt matjurtagarð eða gróðurkassa er nú komið í loftið. Garðana má finna á 3 stöðum í Garðabæ, í Hæðahverfi, á Álftanesi og í Urriðaholti. TIl þess að leigja sér garð eða kassa er smellt hér til að fara á pöntunarsíðuna . Þar eru upplýsingar um garðana og staðsetningu þeirra og yfirlit um þá garða sem lausir eru til útleigu. Smellt er á garð sem er laus og valið er að leigja og farið í gegnum greiðsluferli. Athugið að matjurtagarðarnir í Hæðahverfi verða ekki tilbúnir á sama tíma og gróðurkassarnir, bíða þarf eftir tölvupósti um að garðarnir séu tilbúnir áður en hægt er að gróðursetja í þá.
Frekari upplýsingar um garðana og notkun þeirra má finna hér á vef Garðabæjar.
Kerfið er unnið ofaná Navision, þar sem einföld umsókn sem tekur frá garða þegar búið er að panta þá.