Stafrænt pósthólf fyrir sveitarfélögin

Í lögum um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda nr. 105/2021 kemur fram að öllum opinberum aðilum sé skylt að birta ákveðnar tegundir gagna í stafrænu pósthólfi fyrir 1. janúar 2025.

Á síðasta ári tóku gildi lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Markmið laganna er að stuðla að skilvirkri opinberri þjónustu, auka gagnsæi við meðferð mála, hagkvæmni í stjórnsýslu og tryggja örugga leið til að miðla gögnum til einstaklinga og lögaðila. Jafnframt er markmið laganna að meginboðleið stjórnvalda við einstaklinga og lögaðila verði stafræn og miðlæg á einum stað.

Í lögum um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda nr. 105/2021 kemur fram að öllum opinberum aðilum sé skylt að birta ákveðnar tegundir gagna í stafrænu pósthólfi fyrir 1. janúar 2025. Þau gögn sem um ræðir eru hvers konar gögn, sem verða til við meðferð máls hjá stjórnvöldum, svo sem tilkynningar, ákvarðanir, úrskurði, ákvaðir og aðrar yfir­lýsingar.

Við gildistöku laganna birti fjármála- og efnahagsráðuneytið áætlun um innleiðingu stafræna pósthólfsins hjá opinberum aðilum. Samkvæmt innleiðingaráætlun stafræna pósthólfsins er stefnt að innleiðingarvinnu með sveitarfélögum á Suðurnesjum á öðrum ársfjórðungi 2023, sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu á þriðja ársfjórðungi og sveitarfélögum á Austurlandi á fjórða ársfjórðungi. Árið 2024 mun innleiðingarvinna fara fram með sveitarfélögum á Vesturlandi, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Suðurlandi og Norðurlandi eystra.

Kynning á stafræna pósthólfinu