Sveitarfélagavefir á Ísland.is 

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur verið að vinna í greiningu og þjónustu á þörfum sveitarfélaga í tengslum við umræðuna að vefir sveitarfélaga fari inn á Ísland.is í samræmi við markmið í stefnu um stafræna þjónustu hins opinbera. Greining hefur leitt í ljós að margt er sameiginlegt með vefjum sveitarfélaga og margt má samnýta þegar farið er í vinnuna að setja nýja vefi sveitarfélaga í loftið.  

 

Markmið með verkefninu er að auka samvinnu sveitarfélaga í stafrænni þróun, styrkja samstarf við Stafrænt Ísland, ná hagræðingu í rekstri vefja, styrkja upplýsingagjöf til íbúans og bæta opinbera þjónustu.

Með því að flytja vefi sveitafélaga á Ísland.is ganga sveitafélög inn í Ísland.is samfélagið og geta þannig einblínt á kjarna hlutverk sitt í þjónustu við íbúa. Stafrænt Ísland viðheldur og þróar hönnunarkerfi Ísland.is sem og efnis- og aðgengisstefnu í samstarfi við Ísland.is samfélagið með þarfir notanda að leiðarljósi. Næstu skref er að kynna niðurstöður greininga fyrir sveitafélögum og ræða hvað tekur við ef sveitafélögin velja að stíga þetta skref.