Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að framsýnum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sérfræðings hjá stafrænu umbreytingarteymi sem vinnur með sveitarfélögunum.
Viðkomandi mun taka virkan þátt í uppbyggingu sameiginlegra -innviða, gagnahögun og nýtingu gagna fyrir sveitarfélögin. Viðkomandi þarf að hafa skýra sýn á þau tækifæri sem stafræn umbreyting felur í sér, frumkvæði og metnað til að sýna árangur og kraft til að hrinda breytingum í framkvæmd. Viðkomandi þarf að hafa hæfni í samskiptum og samvinnu, getu til að taka ákvarðanir, auk þess að hafa reynslu og metnað til að ná árangri í þágu sveitarfélaganna og samfélagsins.
Um er að ræða full starf óháð staðsetningu í stafrænum umbreytingarteymi sem starfar innan Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórnun stafrænna verkefna fyrir sveitarfélög með áherslu á stafræna innviði og gagnahögun.
- Ávinningsmat og forgangsröðun verkefna. Áætlanagerð og áhættustýring verkefna sem snúa að sameiginlegri innviðauppbyggingu á sviði upplýsingatækni.
- Stuðla að bættri hagnýtingu gagna og upplýsingatækni í rekstri sveitarfélaga.
- Leiða vinnu að mótun tæknistefnu sem styður við sameiginlega stefnu sveitarfélaga um stafræna umbreytingu.
- Fylgja eftir og miðla sjónarmiðum sveitarfélaga á sviði upplýsingatækni.
Hæfnikröfur
- Háskólapróf eða sambærileg menntun.
- Þekking og reynsla af uppbyggingu upplýsingatæknimála og stafrænni umbreytingu.
- Geta til að stýra verkefnum, setja upp skipulag og áætlanir.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að koma skoðunum, upplýsingum og röksemdarfærslum frá sér á skýran hátt.
- Greiningarhæfni og túlkun gagna og upplýsinga og geta til að setja fram á skiljanlegan hátt.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Yfirsýn og þekking á markaðsþróun upplýsingatæknimála og tækifærum.
- Mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku, auk kunnáttu í einu Norðurlandamáli.
Starfsaðstaða
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en einnig á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík.
Frekari upplýsingar um starfið
Nánari upplýsingar veitir Fjóla María Ágústsdóttir, leiðtogi stafræns umbreytingarteymis, netfang: fjola@samband.is eða Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Samband íslenskra sveitarfélaga er heilsueflandi vinnustaður og leggur ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu eftir því sem við á. Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á heimasíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að finna starfslýsingu fyrir starfið og mannauðsstefnu sambandsins.
Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf verkefnisstjóra í stafrænni umbreytingu“, berist eigi síðar en mánudaginn 24. janúar nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti til samband@samband.is.