Það þarf heilt þorp til að koma stafrænum sveitarfélögum á legg

Grein eftir Fjólu Maríu Ágústsdóttir sem birtist í Fréttablaðinu þann 10.febrúar 2022

Fjóla María Ágústsdóttir skrifar

Samkvæmt stefnu um stafræna þjónustu hins opinbera frá 2021 er markmiðið að Ísland verði meðal allra fremstu þjóða heims í stafrænni þjónustu. Metnaðurinn stendur til þess að bjóða þegnum landsins upp á skilvirka og heildræna opinbera þjónustu sem einfaldar líf þeirra þar sem einstaklingar þurfa ekki að skila aftur og aftur gögnum á pappírsformi eða senda tölvupósta þegar þeir þurfa á þjónustu hins opinbera að halda. Samband íslenskra sveitarfélaga er aðili að þessari stefnu f.h. sveitarfélaga og sveitarfélög þurfa nú að bretta upp ermar til að ná þeim markmiðum sem þar eru sett.


Stafrænt umbreytingarteymi sveitarfélaga hefur verið stofnað hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem vinnur með sveitarfélögum og styður þau í þeim fjölmörgu verkefnum sem tækniframfarir bjóða upp á. Teymið vinnur náið með sérfræðingum sveitarfélaga um stafræna þróun og stafrænu ráði sveitarfélaga sem er skipað framkvæmdastjórum sveitarfélaga og pólitískt kjörnum fulltrúum úr öllum landshlutum. Auk þess vinnur teymið með Stafrænu Íslandi og fjármálaráðuneytinu til að stuðla að samnýtingu og samhæfingu þvert á opinbera geirann.


Gríðarlega mikilvægt er fyrir sveitarfélög og hið opinbera að leggja áherslu á stafræna umbreytingu enda er varla nokkurt verkefni eða áskorun leyst nema með tækni.
Stafræn umbreyting felur í sér nýtt og breytt verklag með nútímalegri tækni. Þetta þýðir að sveitarfélög, opinberir aðilar og fyrirtæki eru að ganga í gegnum róttækar breytingar með það að markmiði að bæta notendaupplifun með snjallari og skilvirkari lausnum. Hún byggist á samtengingu tæknilausna til að fá betri yfirsýn og betri nýtingu á mannafla og fjármagni. Þessi vegferð getur falið í sér að breyta þurfi skipulagi, færa til ábyrgð, endurskrifa reglur eða endurhanna ferla. Þetta snýst því alls ekki bara um tækni heldur jafn mikið um breytingastjórnun, þekkingaruppbyggingu og breytingu á skipulagi, stefnumótun og stjórnsýslu.


Starfsmenn og fastir stjórnendur sveitarfélaga eru í auknum mæli farnir að átta sig á þeim tækifærum sem stafræn þróun og nútímatækni getur haft á rekstur sveitarfélaga, á verkferla, vinnubrögð og afgreiðslu mála til að ná meiri skilvirkni, en kjörnir fulltrúar þurfa líka að átta sig á þessum tækifærum og þessari hröðu þróun og möguleikum sem tæknin býður upp á.
Nú fer senn að líða að sveitarstjórnarkosningum og vona ég að þeir sem bjóða sig fram til sveitarstjórna geri sér grein fyrir því hvað framfarahugsun er mikilvæg og skilningur og þekking á tækifærum tækninnar til að búa til öflug sveitarfélög.


Íbúar gera oft ekki greinarmun á því hvaða þjónustu ríkið veitir og hvaða þjónustu sveitarfélög veita, auk þess sem þjónusta ríkis og sveitarfélaga tengist oft. Íbúinn ætti ekki að þurfa að byrja upp á nýtt þegar hann færir sig á milli stjórnsýslustiga. Þjónusta hins opinbera þarf að birtast íbúum sem ein heild og því eru gríðarlega mikil tækifæri fólgin í samstarfi ríkis og sveitarfélaga í endurhönnun þjónustu með nýrri tækni til að einfalda líf einstaklinga.
Að nota ólíka styrkleika og þekkingu stafrænna leiðtoga mismunandi sveitarfélaga og ríkisins fyrir heildarárangur stafrænnar þróunar landsins.

Það hefur þegar sýnt sig að samtal og samstarf sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu hefur borgað sig og ávinningurinn á eftir að koma enn betur í ljós. Ísland er hálfgert þorp þó sveitarfélögin séu býsna mörg en þau eru mörg hver lítil og standa ekki vel að vígi í þekkingu á stafrænni þróun. Faghópur um stafræna umbreytingu sveitarfélaga hefur nú hist a.m.k. mánaðarlega í um tvö ár og lagt grunninn að samstarfi sveitarfélaga og þeirri stefnu sem er í mótun í stafrænni umbreytingu. Innan hópsins hefur átt sér stað deiling á þekkingu, upplýsingum og reynslu sem hefur verið ómetanlegt fyrir ákvarðanir og framþróun. Á lokaðri Facebook-síðu hafa sveitarfélögin einnig getað deilt upplýsingum og reynslu og nú á nýrri og glæsilegri vefsíðu samstarfsins, stafraen.sveitarfelog.is, sem sett var upp sl. sumar. Þar deila þau reynslusögum af lausnum og snjöllum lausnum sem öll sveitarfélög geta nýtt sér til að bæta þjónustu sína. Þar er einnig að verða til verkfærakista með leiðbeiningum og sniðmátum sem sveitarfélög geta nýtt sér í stafrænum verkefnum. Stafræn færni er stór og mikilvægur þáttur í stafrænni umbreytingu og eru upptökur af hinum ýmsu fyrirlestrum um stafræna þróun sveitarfélaga og ríkisins aðgengilegar á síðunni. Markmiðið er að bæta og þróa síðuna jafnt og þétt þar sem stafrænt umbreytingarteymi sambandsins og sveitarfélögin styðja hvort annað í þessari hröðu stafrænu þróun og efla færni og getu sveitarfélaganna svo þau geti nútímavætt vinnuumhverfi sitt og þjónustu.


Samstarf er lykillinn og þannig munum við halda áfram.

Sjá grein í Fréttablaðinu