Málþing um samstarf sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu
Á málþinginu var sýnt fyrsta samstarfsverkefni sveitarfélaga inn á Ísland.is, umsókn um fjárhagsaðstoð og hvernig sveitarfélög geta tekið það upp og Stafrænt Ísland kynnti vinnu við gerð vegvísis fyrir næstu umsóknarferla þar inn.
Farið var yfir greiningu KPMG á skrifstofuhugbúnaðar umhverfi sveitarfélaga, en sveitarfélög völdu Microsoft leyfamál, einfaldari skjalamál og rafræn skil ein mikilvægustu verkefnin í samvinnu í stafrænni umbreytingu.
Lagaumhverfið í stafrænni umbreytingu, persónuvernd og öryggismál er gríðarlega mikilvægur þáttur og heyrðum við m.a. í Reykjavíkurborg og Danmörku um þau mál og hvernig við getum passað okkur.
Að lokum var farið yfir hvernig vefsíðan stafraen.sveitarfelog.is getur nýst sveitarfélögum.
Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fjóla María Ágústsdóttir, leiðtogi stafræns umbreytingateymis hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Þjónustuþróun inn á Ísland.is
Fjóla María Ágústsdóttir, leiðtogi stafræns umbreytingateymis hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Lína Viðarsdóttir, teymisstjóri hjá Kolibri
Soffía Ólafsdóttir, deildarstjóri á fjölskyldu- og barnamálasviði hjá Hafnarfjarðarkaupsstað
Áslaug Þ. Guðjónsdóttir Luther, deildarstjóri þjónustu og þróunar hjá Reykjanesbæ
Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson, vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi
Skrifstofuhugbúnaður
Hjálmur Hjálmsson, rekstrarráðgjafi hjá KPMG
Tryggvi R. Jónsson, upplýsingatækniráðgjafi hjá Trigger ráðgjöf ehf
Sigríður Magnea Björgvinsdóttir, deildarstjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar hjá Árborg
Stafræn umbreyting skv. lögum
Aldís Geirdal Sverrisdóttir, teymisstjóri lögfræðiþjónustu þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar
Kristín Ólafsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Hanne Marie Motzfeldt, dósent í stafrænni stjórnun í Kaupmannahafnarháskóla
Miðlun þekkingar og verkfæra
Hrund Valgeirsdóttir, verkefnastjóri í stafrænni umbreytingu hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Fjóla María Ágústsdóttir, leiðtogi stafræns umbreytingateymis hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga