Lausnatorgið er vettvangur þar sem sveitarfélög og birgjar geta deilt smærri opnum lausnum miðlægt.
Hvern lausn hefur opinn aðgang að forritunarkóða og skjölun í gegnum Github. Einnig eru leiðbeiningar til að setja upp lausnina, tæknin á bakvið hana og ýmsar fleiri upplýsingar.
Í framtíðinni verður hægt að sjá tilboð frá birgjum fyrir hverja lausn vegna uppsetningar. Þeir munu hafa þekkinguna til að innleiða lausnirnar hjá sveitarfélögum með sína eigin tíma- og kostnaðaráætlun.
Fyrirmynd Lausnatorgsins er OS2 síðan sem er samstarfsvettvangur sveitarfélaga í Danmörku til að deila vörum og verkefnum sín á milli.
Ávinningar Lausnatorgsins fyrir sveitarfélögin eru
- Stuðlun að samvinnu milli sveitarfélaga
- Miðlun þekkingar milli sveitarfélaga
- Betri þjónusta við íbúa
- Hraðari stafræn vegferð sveitarfélaga
- Lægri kostnaður sveitarfélaga
Hafðu samband ef þitt sveitarfélag eða fyrirtæki er með lausn sem þið viljið deila með öðrum sveitarfélögum.
[xyz-ips snippet="Mailcheck-disable"]