Microsoft 365 Business Basic hentar sveitarfélögum fyrir framlínustarfsfólk ef annar hugbúnaður er notaður til að verja gögn t.d. fyrir leka eða eyðingu á útstöð og/eða í skýjaþjónustum.
Innihald Business Basic
- Aðgengi að pósthólfi í gegnum vefviðmót
- Aðgangur að Teams skrám, fundum og samskiptum (Chat)
- Aðgangur að Sharepoint skrám
- Word, Excel og PowerPoint í gegnum vafra (ekki í tölvu)
Framlínustarfsfólk (Front-line workers):
- Er ekki með fartölvu né fasta borðtölvu á tilgreindri vinnustöð fyrir sig.
- Þarf aðgang að upplýsingum innan sveitarfélagsins, þ.m.t. tölvupósti, gögnum sem geymd eru á sameiginlegum svæðum (Sharepoint, Teams, o.s.frv.) og þarf að geta tekið þátt í samskiptum (Chat, o.fl.).
- F3 er annað leyfi fyrir framlínu starfsfólk sem inniheldur heldur meira en er venjulega aðeins dýrara.
Microsoft 365 | Business Basic |
Office pakki (apps) | Office Business: Word, Excel, PowerPoint, Outlook (í vafra) |
OneDrive gagnapláss | Mikið gagnapláss á notanda |
Gagnastýringar í Onedrive og Sharepoint | Aðgangsstýringar (einstaklingar og hópar) |
Tölvupóstur gagnapláss | Miðlungs gagnapláss |
Gagnastýringar í tölvupósti | Aðgangsstýringar (t.d. annarra að pósthólfi) |
Windows uppsetningar á nýjum vélum | Ekki innifalið |
Windows Defender vírus/óværuvörn | Ekki innifalið |
Gagnavarðveisla | Ekki innifalið |