Business Basic

Microsoft 365 Business Basic hentar sveitarfélögum fyrir framlínustarfsfólk ef annar hugbúnaður er notaður til að verja gögn t.d. fyrir leka eða eyðingu á útstöð og/eða í skýjaþjónustum.

Innihald Business Basic

  • Aðgengi að pósthólfi í gegnum vefviðmót
  • Aðgangur að Teams skrám, fundum og samskiptum (Chat)
  • Aðgangur að Sharepoint skrám
  • Word, Excel og PowerPoint í gegnum vafra (ekki í tölvu)

Framlínustarfsfólk (Front-line workers):

  • Er ekki með tölvubúnað frá sveitarfélaginu, ekki fartölvu né fasta borðtölvu á tilgreindri vinnustöð fyrir sig.
  • Þarf aðgang að upplýsingum innan sveitarfélagsins, þ.m.t. tölvupósti, gögnum sem geymd eru á sameiginlegum svæðum (Sharepoint, Teams, o.s.frv.) og þarf að geta tekið þátt í samskiptum (Chat, o.fl.).
Microsoft 365Business Basic
Office pakki (apps)Office Business: Word, Excel, PowerPoint, Outlook
OneDrive gagnapláss1TB á notanda
Gagnastýringar í Onedrive og SharepointAðgangsstýringar (einstaklingar og hópar)
Tölvupóstur gagnapláss50GB / 50GB „archive“
Gagnastýringar í tölvupóstiAðgangsstýringar (t.d. annarra að pósthólfi)
Windows uppsetningar á nýjum vélumEkki innifalið
Windows Defender vírus/óværuvörnEkki innifalið
GagnavarðveislaEkki innifalið