Microsoft 365 Business Premium hentar sveitarfélögum ef starfsmannafjöldi er undir 300 og annar hugbúnaður er notaður til að verja gögn t.d. fyrir leka eða eyðingu á útstöð og/eða í skýjaþjónustum.
Innihald Business Premium
- Aðgengi að pósthólfi með auknu gagnamagni
- Aðgangur að Teams skrám, fundum og samskiptum (Chat)
- Aðgangur að Sharepoint skrám
- Word, Excel, PowerPoint og önnur Microsoft Office forrit á útstöð
Skrifstofustarfsfólk (Office / Information):
- Er með tölvubúnað frá sveitarfélaginu sem viðkomandi hefur til notkunar og deilir ekki með öðru starfsfólki að jafnaði.
- Þarf að geta komist í skjöl bæði í skýjaþjónustum og eldri gagnasvæðum (t.d. word skjöl á sameignardrifum ef slíkt er enn í notkun).
- E3 er annað leyfi fyrir sambærilegan hóp starfsmanna sem inniheldur heldur meira en kostar einnig aðeins meira.
Business Premium
Microsoft 365 | Business Premium |
Office pakki (apps) | Office Business: Word, Excel, PowerPoint, Outlook |
OneDrive gagnapláss | Mikið gagnapláss á notanda |
Gagnastýringar í Onedrive og Sharepoint | Aðgangsstýringar (einstaklingar og hópar) |
Tölvupóstur gagnapláss | Miðlungs gagnapláss |
Gagnastýringar í tölvupósti | Aðgangsstýringar (t.d. annarra að pósthólfi) |
Windows uppsetningar á nýjum vélum | Windows Autopilot innifalið |
Windows Defender vírus/óværuvörn | Innifalið (Plan 1) |
Gagnavarðveisla | Handvirk og takmörkuð |