E3

Microsoft 365 Enterprise (E3) hentar sveitarfélögum ef starfsmannafjöldi er yfir 300 og enginn annar hugbúnaður eða lausnir eru til staðar til að verja gögn eða varðveita.

Innihald E3

  • Aðgengi að pósthólfi
  • Aðgangur að Teams skrám, fundum og samskiptum (Chat)
  • Aðgangur að Sharepoint skrám
  • Word, Excel, PowerPoint og önnur Microsoft Office forrit á útstöð
  • Aukið gagnamagn t.d. í tölvupósti til að mæta kröfum um varðveislu

Skrifstofustarfsfólk (Office / Information):

  • Er með tölvubúnað frá sveitarfélaginu sem viðkomandi hefur til notkunar og deilir ekki með öðru starfsfólki að jafnaði.
  • Þarf að geta komist í skjöl bæði í skýjaþjónustum og eldri gagnasvæðum (t.d. word skjöl á sameignardrifum ef slíkt er enn í notkun).
  • Buinsess Premium er annað leyfi fyrir sambærilegan hóp starfsmanna sem inniheldur heldur minna en kostar líka minna. E5 er dýrara leyfi sem inniheldur aukna virkni í gagnaöryggi og fyrir gagnagreinendur.
Microsoft 365Enterprise (E3)
Office pakki (apps)Office Pro: Bætir við Access og virkni í Excel (Power Map, Power Query, Power View) og stuðningur við miðlægar stillingar í uppsetningum (Group Policy)
OneDrive gagnaplássÓtakmarkað gagnapláss
Gagnastýringar í Onedrive og SharepointAðgangsstýringar, gagnalekavarnir/flokkun (Data Loss prevention), varðveisla t.d. vegna lagakrafa (In-Place hold) og leit.
Tölvupóstur gagnaplássMikið gagnapláss
Gagnastýringar í tölvupóstiAðgangsstýringar, gagnaleki (Data Loss prevention), varðveisla t.d. vegna lagakrafa (In-Place hold)
Windows uppsetningar á nýjum vélumWindows Autopilot innifalið
Windows Defender vírus/óværuvörnInnifalið (Plan 1)
GagnavarðveislaInnifalin virkni s.s. „In-Place hold“ o.fl. sem getur gert varðveislu upplýsinga t.d. tölvupósta sjálfvirka.